Meðferðir / treatments
Fótaaðgerð
Byrjað á fótabaði, svo er sigg fjarlægt með hníf og pússað yfir, ef líkþorn séu eru þau fjarlægð. Neglur klipptar og pússaðar niður sé þess þörf. Fótaaðgerð endar með léttu fótanuddi ásamt ráðleggingum um fótahirðu. Fótaaðgerð getur tekið 45-60 min.
1/2 Fótaaðgerð / Húð
Byrjað á fótabaði, svo er sigg fjarlægt með hníf og pússað yfir, ef líkþorn séu eru þau fjarlægð. Fótaaðgerð endar með léttu fótanuddi ásamt ráðleggingum um fótahirðu. 1/2 fótaaðgerð getur tekið 20-30 min.
1/2 Fótaaðgerð / Neglur
Byrjað á fótabaði svo eru neglur klipptar og pússaðar niður sé þess þörf. Fótaaðgerð endar með léttu fótanuddi ásamt ráðleggingum um fótahirðu. 1/2 fótaaðgerð getur tekið 20-30 min.
Smáaðgerðir
Smáaðgerðir á borð við inngróna nögl, líkþorn eða sprungu.
Smáaðgerð er um það bil 30 min.
Vörtumeðferð
Vörtur meðhöndlaðar með viðeigandi meðferð. Algengt er að þurfi að koma í nokkur skipti.
Vörtumeðferð tekur 15 min.
Spangarmeðferð
Meta þarf neglur áður en bókað er í spangarmeðferð. Spangarmeðferð tekur 20-30 min. Endurkoma eftir 3 mánuði eða eftir þörfum hvers og eins.
